31 ágúst 2006


Alzheimer light
Sá það í Timesonline að líkurnar á að fá Alzheimer minnka um 76% ef fólk drekkur ávaxta-eða grænmetissafa oftar en þrisvar í viku samanborið við þá sem drekka þessa safa einu sinni eða sjaldnar. Ææ, þessar upplýsingar koma aðeins of seint fyrir mig.

30 ágúst 2006


Uppreisn æru með forsetabréfi í fjarveru forsetans
Skemmtilegt hvernig Sjálfstæðismenn nýta sér alltaf smugurnar þegar forsetinn skellir sér á skíði eða annað. Nýjasta útspilið er að náða Árna orkubolta með forsetabréfi. Svo skemmtilega vill til að Björn Bjarnason, Geir Haarde og Sólveig Pétursdóttir fara með forsetavaldið í fjarveru Ólafs Ragnars. Það er gaman að fylgjast með svona sprellurum.

07 ágúst 2006

Pink Moon

Þar sem að ég tek foreldrahlutverkið gríðarlega alvarlega ákvað ég að fara með Sindra son(3 ára) minn á kaffihúsið í Máli og Menningu í gær. Þegar ég var í miðju kafi að glugga í áhugaverða bók sem ég hafði gripið í bókabúðinni, þá kallar Sindri yfir allt kaffihúsið: "Pabbi, hver var að prumpa?" Það er eins gott að veita börnunum nægjanlega athygli annars eru þau vís til þess að grípa til álíka örþrifaráða til þess að fanga hana.

Eftir að hafa yfirgefið menningarlega kaffihúsið, þá keyrðum við Suðurgötuna og sáum mann í hellilögnum sem snéri rassinum að götunni og var ekki bara með rassaskoruna upp úr buxunum, heldur allan rassinn og ljótari rass hef ég ekki séð á ævinni. Er ennþá að reyna að ná hrollinum úr mér og ákvað því að reyna að blogga mig frá þessu til þess að reyna að koma flökurleikatilfinningunni frá mér þegar þetta skýst upp í hugann eins og óvelkominn popup-gluggi.